miðvikudagur, janúar 19, 2005
WWW.HAFJUL.COM
JÁ ÞAÐ ER RÉTT ENDURKOMA ER VÆNTANLEG.
ÞIÐ EFIST KANNSKI EN HAFJUL.COM VERÐUR KOMINN Í GANG INNAN SKAMMS
Hafsteinn Júlíusson 2:19 PM
föstudagur, ágúst 13, 2004
Endurkoma væntanleg
Hafsteinn Júlíusson 3:06 PM
fimmtudagur, júní 10, 2004
Julio Mar
Já þá er maður bara einum bróðurnum ríkari. Já hann heitir Júlíus Mar kallinn kom í heiminn seinasta mánudag. Þetta er ótrúlegt alveg hreint. Svo er maður bara guðfaðir og allt. Tveir heilir áratugir sem skilja okkur bræðurna að og er ég örugglega elsti bróðir sem sögur fara af.
Hann unglingur þá er ég orðinn gamall kall nei nei segi svona en þetta er samt magnað.
Já Julio er maðurinn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1
Hafsteinn Júlíusson 9:21 PM
föstudagur, júní 04, 2004
Disco golf
Já við skelltum okkur í folf í gær ég Valdi, Herra Sissó og Rósi. Ég hef aldrei prófað þetta áður en þetta var alveg að heilla mig. Valdi hefur verið svona leaderinn í þessu en nú er Sissó orðinn svaka heitur og vann báða leikina í gær. Mér gekk ekkert alltof vel en kannski bara ágætlega miðað við byrjanda enda er ég náttúrulega í engu folf formi og sýndi það sig best þannig að ég byrjaði mjög vel en svo voru hinir að toppa í endann og þá var ég búinn en þetta versnar nú ekki úr þessu. Menn eru að tala um það að halda túrnament í sumar svona helgartúrnament og verður það sko ekkert slor.
Hafsteinn Júlíusson 8:14 AM
mánudagur, maí 31, 2004
Skál
Já ég þakka bara fyrir mig og öll skemmtilegu commentin fyrir neðan. Þetta var geðveikt gaman, maturinn, gjafirnar, fólkið, ræðan og veislan.
Svo var ekki leiðinlegt að enda þetta kvöld hjá Jón Bjarka á Kúbu með góðar kjúklingabringur og vinum sínum.
Takk fyrir mig!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hafsteinn Júlíusson 8:08 PM
föstudagur, maí 28, 2004
Stúdent
Hafsteinn Júlíusson 7:30 PM
laugardagur, maí 22, 2004
Gaudeamus Igitur
Já þá er maður kominn langt í land með stúdentsprófið fékk einkunnir í gær og var ég alvega að massa þetta bara með 6,50 í meðal og ekki neitt einasta fall á öllum fjórum árunum. Námseinkunn var eitthvað að draga mig niður einhver leti bara.
En ég skellti mér í stúdentsveislu í gær hjá Orra frændasem var mjög fínt og viti menn Pilsner Urquell var á boðstólunum eða Prins Urquell eins og Siggi myndi segja og gerði það mikla lukku.
En vá þvílík seremónía sem þessi útskrift verður. Við vorum látinn í 2 klukkutíma gönguæfingu, 1 tíma söngæfingu og ég veit ekki hvað og hvað þetta gengur alveg út í öfgar.
Hafsteinn Júlíusson 1:30 PM
föstudagur, maí 14, 2004
Y tu mira
Fokkin ey gott að vera búinn í prófum eins og maðurinn sagði........... var í erfiðasta enskuprófi sem um getur................ Eitt skitið munnlegt spænskupróf á mánudag sem er like nothin.......
holla..........
Hafsteinn Júlíusson 12:43 PM
sunnudagur, maí 09, 2004
Float on
Megasukk í gær alveg frábært. Já Megas og Súkkat voru með pakka í gærkvöldi á Grandrokk alveg helvíti fínt og jú Steindór Andersen hitaði upp líka hann var ágætur í hófi. Megas var bara í nokkuð góðu formi. Sýndist bara vera mjög ferskur allavega skildist allt sem hann söng nema hann breytti textum stundum t.d (tíu gíra spítthjólastól) varð að pluspurarauðumperluhjólstól. Megas virðist allavega vera spjara sig með þessi listamannalaun held ég.
Annars er ég bara að fara í Hamlet próf þannig að ég ætla fara að horfa á myndina því þessi bók er alveg óskiljanleg.
Hafsteinn Júlíusson 8:47 PM
fimmtudagur, maí 06, 2004
Forrafaelítar
Hvað er málið alltaf með þessi íslensku próf ekkert smá erfið. Ég var ekki sáttur með hvað lítið var spurt um Þórberg Þórðar og ég skrifaði einfaldlega aftast á prófið orðrétt " hvernig væri nú að spyrja meira um Þórberg, hann er að mínu mati grunnurinn sem að húsi íslenskra bókmennta stendur á án hans væri lítið í það varið og það væri jafnvel hrunið. Varðandi grunninn þá myndu margir segja : en hvað með íslendingasögurnar eru þær ekki grunnurinn en ég segi nei þær eru ekki grunnurinn fíflin ykkar heldur jarðvegurinn"
Og hvað er svo málið með það að alltaf ef maður bíður í síma hjá einhverju fyrirtæki þá kemur Dido, gerði hún einhvern samning eða eitthvað.
Hafsteinn Júlíusson 7:20 PM
laugardagur, maí 01, 2004
Upáhalds myndin mín
Djöfull eru Kill bill 1 og 2 fáránlega góðar myndir. Ég fór aftur á Kill Bill 2 í gær og mér leiddist ekki eitt sekúnubrot og það er mjög góður árangur hjá myndinni. Þetta er bara eitthvað svo gúddfíl mynd og Tarantino þvílíkt öflugur. Samtölin, leikurinn, myndatakan og tónlistin allt frábært og þá sérstaklega blöndun kvikmyndastíla þetta er eins og að horfa á margar mismunandi myndir t.d 70's stíllin í Texas, kung fú stílinn hjá pai mei í kína og tala nú ekki um gamla casablanca stílinn í byrjun þetta er svakalegt. Uppáhaldsmyndin mín núna pott þétt.
Hver veit á hvaða disk samtalið úr Shogun Assasin er þetta er bara fyrir harða rappara svarist í comment.
Hafsteinn Júlíusson 6:19 PM
föstudagur, apríl 30, 2004
Hvers vegna er ekki ekkert
Hafsteinn Júlíusson 11:52 AM
fimmtudagur, apríl 29, 2004
Sökum þess að ég sit við lestur frá 9 - 24 þá hef ég ákveðið að leggja bloggskóná á hilluna allavega í svona nokkra daga meðan það mesta gengur yfir. Ég hef nefnilega gerst sekur um fáfræði á námi mínu og verð ég að taka þeim afleiðingum því ekki vill ég gefa mig fram og falla. Samviskan nagar mig inn að beini "wish me luck"............................
Hafsteinn Júlíusson 8:36 PM
sunnudagur, apríl 25, 2004
Myndir
Myndir frá dimison komnar
Hafsteinn Júlíusson 10:28 PM
föstudagur, apríl 23, 2004
Jai jai Winda
Já dimissionið var massive shit. Drykkja frá 8 að morgni til 2 um nóttu.
Byrjuðum eins og áður sagði í partýi hjá Óla val Urr. Mammans var bara tilbúinn með bakkelsi fyrir okkuyr og þvílíkt fæði. Svo skelltum við okkur upp í skóla þar sem fjörið hélt áfram með grillveislu og tilheyrandi. Eftir smá breikdans og læti í u-inu kíktum við níðrí bæ þar sem fólk hélt áfram að hella í sig á Ingólfstorgi ásdamt einhverjum mr-ingum. Kom ekki heim fyrr en hálfjögur um daginn svo ég náði ekki neinni lögn. Í matnum hélt svo fjörið áfram og var maður eiginlega mest á trúnó við kennarana. Clarence Glad var lygilegur og splæsti Red red wine á allan bekkinn.
Fólkinu fækkaði um 12 þar sem fyrri rútan fór þá en allir djúsboltarnir voru eftir og var partýið leyst upp kl 1 vegna mikillar ölvunar. Þetta var magnaður dagur í alla staði og mæli ég eindregið með honum en nú tekur alvaran við og sé ég 14 fyrir mér í hyllingum.
Hafsteinn Júlíusson 11:32 PM
miðvikudagur, apríl 21, 2004
Turning Japanese
Já ég er góður hérna heima reyndar búinn að losna við 50 kílóa súmo glallan en við vorum súmo arabar þetta var vægast sagt gaman. Byrjuðum klukkan átta í morgunpartíi hjá Óla og bara búið að vera fyllirí síðan og það heldur áfram í kvöld í mat með kennurum . En nú er það bara hveragerði og er mæting sex upp í skóla.
Hafsteinn Júlíusson 4:55 PM
þriðjudagur, apríl 20, 2004
Bassi
Já þá er maður mættur hérna á seinasta skóladaginn sinn í sparifötunum og eru vægast sagt blendnar tilfinnigar hér og í ræðunum á eftir á einhver pottþétt eftir að fara væla...........Bassi er hérna í næstu tölvu við mig og er nokkkuð sprækur á að líta................ Dimisjón á morgun og við verðum einhverjir súmó kappar það var beilað á fatbastard................ Já hann dooroo kann sko að enda skólaárið vel búinn að mynd rosa rýg í bekknum milli nokkra aðila já en fyrir þá sem ekki vita þá er Dooroo hin persónan af honum Didda sem sagt persónan bakvið lyklaborðið þið getið tékkað á þessu á dooroo.blogspot.......... En ég er farinn allt að verða vitlaust hérna.
Hafsteinn Júlíusson 8:47 AM
sunnudagur, apríl 18, 2004
Preterito Indefinido
Já þá er það komið á hreint í hinni frægu slagsmálakeppni valla tapaði ég gegn Jón Brynjari en ég lít bara á björtu hliðarnar og finnst mér þá bara gott að detta út gegn sigurstranglegasta keppandanum og er ég vss um að Jón taki þetta.
Annars allt bara spilff hjá mér ógeð að vera læra undir þessi stúdents er að fara í eitt á þriðjudag. Það sem verra er samt að vera blogga um öll þessi leiðindi þannig að ég nenni þessu ekki og við sjáumst bara.
Hafsteinn Júlíusson 4:21 PM
föstudagur, apríl 16, 2004
Helikon Wasp
Síðasti föstudagurinn í ms í dag soldið skrítðið að vera klára þetta en hann var mjög fínn þar sem Sinfoníu hljómsveit íslands bauð skólanum á tónleika með hljómsveitarstjóranum Kristjan Lindbergh sem var líka svona feykihress. Annars er ég bara hress líka.
Bætti inn tveimur nýjum og ferskum bloggurum þeim Ernu og Jóa Fjal.
Hafsteinn Júlíusson 6:35 PM
þriðjudagur, apríl 13, 2004
Hindi
Mikið er Indland magnað. Allt sem kemur frá Indlandi er gott maturinn, tónlistin, trúarbrögðin, gandhi og nú síðast er það Sai Baba sem er talinn vera næsti frelsari okkar mannanna tékkið á þessu.
Ég er fluttur til Indlands.............
Hafsteinn Júlíusson 10:46 AM